17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í B-deild Alþingistíðinda. (1093)

77. mál, verðlag

Flutningsm. (Bjarni Jónsson):

Eg þarf ekki að tefja tímann með langri ræðu um þetta frv. Það mun öllum kunnugt, að það er tekið upp úr tillögum gömlu milliþinganefndarinnar, og er það gert eftir áskorunum frá mönnum víðsvegar um landið. Þetta er svo ljóst mál að engra frekari skýringa þarf við það.