14.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 644 í B-deild Alþingistíðinda. (1097)
78. mál, stimpilgjald
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Eg hefi heyrt svo mjög barinn lóminn yfir fjárhag vorum að ekki mun vanþörf á að lita yfir þá máttuleika, sem til eru til að auka tekjur landssjóðs. Varð þá fyrst fyrir álit hinna skynsömu manna er sæti höfðu í milliþinganefndinni eldri og virðist mér allar uppástungur þess verðar að þær séu gerðar að lögum. Eg hefi leyft mér að taka upp þetta frv. til að sýna, að ekki eru allar aðrar leiðir lokaðar til að auka tekjur landssjóðs, en að gera landið að lepp fyrir útlent gróðafyrirtæki. Frv. er á góðum rökum og vel frá gengið af hálfu nefndarinnar, og fylgir því áætlun hennar um, að tekjur af því muni verða ca. 25 þús. kr. En auðvitað verður að auka við það, til að ná undir ákvæði þess um stimpilgjald, t. d. víxlum og ávísunum. Og ekki má gleyma því, að ef þessi lotterílög verða samþykt, þá má selja hér alt danska Klasse- og Kolonial-lotteríið ef kaup fást, og er því sjálfsagt að þeim happdrættis-hlutum sé komið innundir stimpilgjalsákvæði frv. En til þess að tefja ekki tíma þingsins með því að koma með breytingar þessar óundirbúið, þá hefi eg prentað frv. upp óbreytt og legg til að því sé vísað til skattamálanefndarinnar, og gæti eg þá talað mig saman við nefndarmenn mína til 2. umr. og samið brtill. í samráði við þá. Að vísa þessu máli, sem komið er frá milliþinganefnd, til stjórnarinnar, mundi eg skoða gert í því skyni að leysa undan gjaldhættu happdrættisseðla þá sem eg gat um áðan.