22.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (1142)
104. mál, einkasöluheimild á steinolíu
Valtýr Guðmundsson:
Það var annað steinolíueinokunarfrumvarp hér á ferðinni nýlega sem eg var á móti, og þó mér þyki þetta frumv. aðgengilegra, þá verð eg að vera á móti því líka. Eg get yfirleitt ekki verið með einokun í neinni mynd. Það er landsmönnum sjálfum að kenna, ef þeir láta einoka verzlun sína. Séu menn samtaka, þá er slíkt ómögulegt. Ef hægt er að fá ódýrari steinolíu í útlöndum en þá, sem steinolíufélagið danska hefir á boðstólum, þá eiga menn að slá sér saman og panta hana, en sé ekki hægt að fá ódýrari olíu annarsstaðar, þá eru allar tilraunir þýðingarlausar.
Auk þessa er frumv. þetta að ýmsu leyti óaðgengilegt. Það vantar nánari ákvæði um, hvernig farið skuli með birgðirnar.
Það vitnast auðvitað að lög þessi séu á ferðinni, og það er hægt í snatri að flytja ósköpin öll inn og undirselja stjórnina, svo að hún verði neydd til að hætta og sitja uppi með allar birgðarnar, og landssjóður verði fyrir stórkostlegu fjártjóni. (Jón Ólafsson: Áður hrakið!).
Þá vantar inn í frumvarpið ákvæði um hvernig forstöðu þessarar steinolíu-verzlunar skuli hagað. Það er þó auðvitað, að stjórnin þarf á mönnum að halda við verzlun þessa, því að ekki getur maður búist við að stjórnarráðið fari sjálft að hafa steinolíusöluna á hendi.
1. gr. frumv. er alt of óákveðin, t. d. það, að stjórnin eigi að selja fyrir það verð, er liðlega svari kostnaði og vöxtum. Þá virðist mér það mjög varhugavert, að veita stjórninni alveg óákveðna og ótakmarkaða lánsheimild. Það kalla eg oftraust, þótt eg treysti stjórninni vel. (Jón Ólafsson: Ábyrgðarlögin, ef misbrúkað er).
Það er þýðingarlaust að vísa málinu til stjórnarinnar, því að hún getur ekkert í því gert. Ef menn vilja hafa það fram, þá er eini vegurinn að skipa nefnd í það, og hafi nefnd grandskoðað það, og málið hafi fylgi í þinginu, þá má vel ljúka við allar umræður í því á einum degi í báðum deildum með afbrigðum frá þingsköpunum.
Skal eg svo ekki fara um málið frekari orðum að sinni.