16.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)

84. mál, samningar við Norðmenn

Ráðherrann (H. H.):

Eg hefi ekki annað að segja en að láta í ljósi þakklæti mitt til nefndarinnar fyrir starf hennar og tillögur. Tilraunir munu verða gerðar til þess að leita samninga við Norðmenn á þessum grundvelli, ef tillaga verður samþykt. Árangurinn af þeim málaleitunum verður að sjálfsögðu lagður fyrir næsta Alþingi. Hvernig hann verður, getur enginn sagt.