01.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (1244)

55. mál, símalína frá Ísafirði til Patreksfjarðar

Flutn.m. (Matthías Ólafsson):

Herra forseti! Eftir orðum hv. þm. S.-Þing. (P. J.) skyldi maður halda, að hann hafi ekki lesið tillöguna. Hér er að eins farið fram á að þetta sé tekið upp á fjárlög næsta fjárhagstímabils. Eg get ekki séð hvaða erindi þetta mál á í nefnd. Hér er ekki um annað að ræða en það, hvort þingið vill verða við þeirri réttmætu kröfu, að borga það, sem landssjóður hefir oftekið, og skil eg eigi hvað nefnd á við það að gera.