01.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (1251)

55. mál, símalína frá Ísafirði til Patreksfjarðar

Valtýr Guðmundsson:

Eg tek undir það, að ólöguleg aðferð er höfð í þessu máli, þótt hér kunni um sanngjarna kröfu vera að ræða. Það er óviðkunnanlegt að binda menn fyrir fram, hvort stjórnin taki endurgreiðslu upp á fjárlögin næst.

Fyrir því leyfi eg mér að afhenda hæstv. forseta svohlj. tillögu til rökstuddrar dagskrár:

Í því trausti, að landsstjórnin taki efni till. á þgskj. 96 til athugunar tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.