20.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (1284)
88. mál, ríkisréttindi Íslands
Frams.m. (Skúli Thoroddsen):
Eg skal taka það fram, út af því sem hv. þm. Ak. (G. G.) sagði þess efnis, að Íslendingar hefðu hingað til eigi látið mikið af ágæti stöðulaganna, að þessi ummæli hans eru blekkjandi. Hann notar sér það að Íslendingar hafa jafnan haldið því fram, sem rétt er, að stöðulögin væru eigi til orðin á löglegan hátt, notar sér það, til þess að blekkja menn, láta þá halda, að í þingsályktunartillögunni sé verið að fara einhverju því fram, sem óíslenzkulegt, og óþjóðræknislegt sé.
En þó að Íslendingar hafi ekki viðurkennt tilorðning stöðulaganna rétta, né gildi þeirra frá lagalegu sjónarmiði, þá hafa þeir aldrei neitað því, að í þeim felist tilboð frá Dana hálfu til Íslendinga, og þær viðurkenningar Dana um það, hvað þeir vilji, að talin séu sérréttindi vor, eru oss Íslendingum sannarlega ekki einskis virði.