23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)
96. mál, verkun og sala ullar
Bjarni Jónsson:
Eg ætla mér ekki að mótmæla á nokkurn hátt þessari þingsályktunartillögu, né heldur manninum sem hefir verið lofaður fyrir dugnað, og það að maklegleikum. En eg vil að eins taka fram, af því að orð hv. 1. þm. G. K. (B. K.) hafa verið sögð röng og töluð út í loftið, að það er að eins eitt efamál hvort heppilegra sé að þvo ullina eða ekki. Og það er, að sönnun brestur á, hvort hægt er að flytja út óhreina ull án þess að hitni í henni. Ef það er hægt, væri heppilegra að flytja ullina út óþvegna.
Eg hefi látið prenta skýrslur um þetta efni, eftir Heinrich Erkes ullarkaupmann í Köln. Hefir hann oft ferðast hér á landi og er mönnum að góðu kunnur. Bæði hann og aðrir sem vit hafa á þessum hlutum, hafa sagt, að betra væri að flytja ullina út óhreina ef hún ekki skemdist. En þó að það kæmist á væri jafn nauðsynlegt að hafa ullarmatsmann og skoðun á ull eftir sem áður.