23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1319)

95. mál, ábyrgðarfélög

Jón Ólafsson:

Eg er máli þessu hlyntur og var það á síðasta þingi, þegar það kom til umræðu.

Eg vil að eins leggja það til, að tryggingarféð skuli vera í íslenzkum verðbréfum.

Slíkt er annarstaðar venja, t. d. á Þýzkalandi. Þar er tryggingarféð í ríkisskuldabréfum.