13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (1339)
72. mál, fyrirspurn um innflutning áfengis
Ráðherrann (H. H.):
Eftir minni skoðun getur ekki komið til nokkurra mála, að íslenzkum skipum, sem rétt hafa til veiða í landhelgi, sé leyft að geyma vínfangaforða ótollaðan hér við land. (Jón Ólafsson: Íslenzkir botnvörpungar veiða ekki í landhelgi.) Það stunda fleiri íslenzk skip veiðar hér við land heldur en botnvörpungarnir, og botnvörpuskipin eru ekki ætíð að botnvörpuveiðum. Það er líka algerlega óheimilt, að útlendir fiskarar, sem veiða hér við land fái að geyma hér ótolluð vínföng til afnota hér við land. En það er alt öðru máli að gegna um vín, sem alls ekki á að nota hér við land, heldur flytja út aftur til annara landa, því það má samkvæmt anda áður nefndrar lagagreinar geyma hér ótollað undir umsjón og innsigli lögreglustjóra, þangað til það er flutt út aftur.
Það er og stór munur, hvort veitt er almennt leyfi til slíks fyrirfram, eða hvort lögunum er liðlega beitt í sérstökum tilfellum, sérstaklega þegar um spánný lög er að ræða, sem hlutaðeigendur ekki hafa varað sig á.
Það dettur engum í hug að setja hér upp neitt „frílager“ fyrir vinföng, frekar en 5. grein bannlaganna leyfir. (Jón Ólafsson: Þetta er „frílager“ ) Þetta vín, sem hér er um að ræða, átti ekki að notast hér við land, eins og eg hefi áður frá skýrt.
Og þó svo sé talið að aðflutningsgjald sé fallið á þegar er skip það, er vöruna flytur, hefir hafnað sig hér, þá er auðvitað skilyrðið fyrir því það, að varan eigi hingað til lands að flytjast, sé að flutningsvara, en ekki að eins transitvara, eins og hér átti sér stað. Þetta sést bert á upphafi fyrstu greinar tolllaganna, sem hljóðar svo: „Þegar fluttar eru til Íslands vörur þær“ o. s. frv. Þessar vörur voru alls ekki ætlaðar til að flytjast inn til Íslands á neinn hátt.
Eg hefi nú skýrt frá því, hvað fyrir liggur í stjórnarráðinu um þetta mál, og get ekki frekari upplýsingar um það geflð. Eg hefi ekkert haft með það að sýsla. En fyrv. ráðh. (Kr. J.), hv. þm. Borgf. er hér viðstaddur og getur svarað fyrir sig.