08.08.1912
Efri deild: 19. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (143)
36. mál, sala á eign Garðakirkju
Jens Pálsson:
Jeg man vel er jeg átti tal við fyrv. ráðherra um þetta mál. Jeg fór fram á það við hann, hvort ekki væri hægt, að selja land þetta sem kirkjujörð; en hann sannfærði mig um, að það væri ómögulegt. Þá ljet jeg þá ósk mína í ljósi, að það kæmi fram sem stjórnarfrumv., en hann mæltist undan því. Sýslumaðurinn í Hafnarfirði hefur og verið hjá fyrv. ráðherra í sömu erindum, en hreyft málinu að eins munnlega eins og jeg.