09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)

20. mál, vatnsveita á Sauðárkróki

Ráðherrann (II. H):

Mcr finst það vera að auka ómak að samþykkja þetta sérstaka frv. ásamt hinu almenna, enda um leið óeðlilegt. Eg er alls ekki á móti þessu frumv. í sjálfu sér, en mér finst satt að segja alveg óþarft, að það nái fram að ganga, þar sem setja má allar þær reglur, er það hefir inni að halda í reglugerð, sem gera má sér vísa von um staðfesting stjórnarinnar á, samkvæmt hinum almennu lögum um þetta efni, sem eru í aðsigi.