16.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)
61. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o. fl.
Matthías Ólafsson:
Herra forseti! Eg er ekki samdóma háttv. þm. Dalamanna. Eg sé ekki að neitt sé á móti aðferð Ed. Hún á fullan rétt til þess, þó frv. snerti fjármálin, og óþarfi finst mér það að drepa málið við 1. umræðu.
Fjarstæða var það sem háttv. þm. sagði, að þetta gjald komi að eins niður á Norðmönnum. Það kemur ekki frekar niður á þeim en Íslendingum, því Íslendingar geta alveg eins og þeir sett upp verksmiðjur til þess að vinna fóðurmjöl og áburðarefni úr síld, og enda þótt tollurinn kæmi niður á Norðmönnum, þá léti eg mér það litlu skifta, því viðskifti okkar við Norðmenn eru oss ekki til neins hagnaðar. Norðmenn koma hingað og eru hér að eins til þess að græða á okkur. Skil eg ekki í háttv. þm. Dal, sem altaf hefir fyrir sitt mottó: „Ísland fyrir Íslendinga“, að hann vilji láta Norðmenn hafa öll möguleg hlunnindi, þá sem engin viðskifti vilja af okkur hafa, nema til þess að græða á okkur, og gaman þætti mér að sjá, hvort hv. þm. Dal. hefði fylgt þessum hlunnindum svo fast fram, ef Danir, en ekki Norðmenn hefðu átt hlut að máli.
Hvað tollinn snertir, þá álít eg hann með öllu réttmætan.