24.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Pétur Jónsson:

Að eins ætla eg að segja sárfá orð. Eg ætla að eins að benda mönnum á, að þeir þurfa ekki að fara í langar draggötur til þess að komast að þeirri niðurstöðu, að verði þetta frv. samþykt þá verður að því mikill sparnaður; þetta kemur í ljós, ef menn bara nenna að bera frumv. saman við ferðareikninga þá, sem Alþingi hefir áður samþykt, og álít eg því að háttv. deild beri að samþykkja þetta frv.