23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (1547)

80. mál, lendingarsjóðsgjöld

Skúli Thoroddsen:

Eg vildi aðeins segja nokkur orð til að mæla með að þetta frv. fái nú fullnaðarsamþ. hér í deildinni. Það hefir fengið góðan byr að undanförnu, og mér er kunnugt um, að mönnum í Norður- og Vestur-Ísafj.-sýslu er það mikið áhugamál að þetta mál nái fram að ganga.