18.07.1912
Sameinað þing: 2. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (1570)
Prófun kjörbréfa
Framsögumaður (Guðlaugur Guðmundsson). Kjörbrjefanefnd alþingis hefur verið afhent kjörbrjef 2. þm. N.-Múl., Einars prófasts Jónssonar. Form þess er að öllu leyti löglegt, og engar kærur hafa komið fram út af kosningunni. Fyrir því leggur nefndin það til í einu hljóði, að kosningin sje tekin gild.