31.07.1912
Neðri deild: 15. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1110 í B-deild Alþingistíðinda. (1605)

Viðbót á mönnum í nefndir

Áður til dagskrár væri gengið lýsti forseti yfir því, að tilmæli hefðu komið fram um það frá síldveiðinefndinni, að við hana yrði bætt 2 mönnum, Bjarna Jónssyni og Einari Jónssyni; samþykti deildin það í einu hljóði.

Enn fremur frá vátryggingarnefnd, að bætt yrði við Guðl. Guðmundssyni og Jóni Magnússyni.