31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (1655)
17. mál, eftirlit með þilskipum
Ráðherrann (H. H.):
Það eru að eins örfá orð. Eg vildi leyfa mér að beina þeirri spurningu til nefndarinnar, hvort hún hefir borið þetta frv. saman við skyld frumvörp, sem liggja fyrir Ed., frv. um eftirlit með þilskipum og frv. um öryggi skipa. Tilgangurinn er sá sami í þessum frv., en á nefndarálitinu verður það ekki séð, hvort nefndin hefir nokkuð tekið þau til greina.