16.08.1912
Efri deild: 26. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

101. mál, unglingaskólinn á Ísafirði

Forseti:

Frumv. þetta var ekki lagt fram fyr en 14. þ. m., sbr. 18. gr. þingskapanna, svo að leita verður undanþágu frá þingsköpunum, til þess það geti komið til meðferðar í háttv. deild. Jeg vænti, að háttv. flutningsmaður óski slíkrar undanþágu, jafnframt og hann gerir grein fyrir, hvað valdið hefur, að frumv. kom svo seint fram.