24.08.1912
Efri deild: 35. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (334)

69. mál, prestssetrið Presthólar

Sigurður Stefánsson:

Að eins örfá orð. Jeg verð að halda fast við það, að það sje fullviðeigandi, að vísa málinu til stjórnarinnar. Jeg hygg, að enn vanti í margar af þeim upplýsingum, sem nauðsynlegar eru, og því sje það heppilegasta leiðin.