22.08.1912
Efri deild: 32. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (350)
18. mál, æðsta umboðsstjórn landsins
Einar Jónsson:
Jeg er sá úr nefndinni, sem fór fram á, að gerðar væru dálitlar breytingar á orðalagi frumv., en þó er mjer það ekkert kappsmál, og vildi leggja það til, að frv. yrði samþykt hjer í deildinni.
Ýmsum hefur þótt svo, sem að í frv. kæmi fram nokkurt misrjetti, að því er þessi 1.000 króna ráðherraeftirlaun snerti. Um það skal jeg ekki deila, en þjóðin hefur óskað, að eftirlaunin væru afnumin, og úr því það ekki er hægt, þá finst mjer þessi lækkun eini vegurinn.