14.08.1912
Efri deild: 24. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (425)

71. mál, kolatollur

Sigurður Stefánsson:

Jeg tek undir það með háttv. 4. kgk. þm., að rjett sje, að taka málið út af dagsskrá í dag. Þá getur efri deild haft bæði málin til athugunar í einu. Hinsvegar getur mikill glundroði orðið úr því, ef það fer til neðri deildar í dag, þá gæti farið svo, að ekkert tollafrumv. yrði afgreitt frá þinginu nema þetta kolatollsfrumv., og er þá ver farið, en heima setið.