19.08.1912
Efri deild: 28. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (478)

89. mál, styrkur til búnaðarfélaga

Björn Þorláksson:

Vegna þess að jeg finn, að þessi dagsskrá, sem hjer er komin fram, er ítarlegri en mín, og tekur meira fram, þá get jeg fallið frá minni dagsskrá.

Var því næst gengið til atkvæða.

Björn Þorláksson tók aftur þá dagsskrá, sem hann hafði stungið upp á, en dagsskrá Einars Jónssonar var samþ. með 7 atkv. gegn 2.