18.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í B-deild Alþingistíðinda. (580)

13. mál, hagfræðisskýrslur um tóbaksinnflutning

Ráðherrann (Kr. J.):

Um þetta : frv. er sama að segja og hið fyrra. Það er sömuleiðis frá nefnd þeirri, er alþingi skipaði í fyrra til þess að athuga fjármálin og er lagt hér fram eins og hún gekk frá því. Það miðar að því, að útvega skýrslur, er komið gætu að haldi, hvort sem yrði ofan á, aukinn tollur á tóbaki eða hitt að landið tæki að sér alla tóbaksverzlum. Eg vona að háttv. deild sýni þessu frv. sama góðvilja og og hinu, og verður því þá væntanlega vísað til sömu nefndarinnar.