27.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (723)
22. mál, veiði í Drangey
Framsögum. (Ólafur Briem):
Eg gerði við 1. umr. grein fyrir nauðsyn þessa frv., og skal eigi fara frekar út í það nú, en að eins færa ástæður fyrir brt. þeim sem nefndin hefir komið með; að öðru leyti felst nefndin á frv.
Í 2. gr. er óskýrt orðað þar sem segir að oddviti skuli kveðja til fundar alla þá er atkvæði eigi um samþyktina, en ekki nákvæmar tiltekið hverjir hafi atkvæðisrétt um hana. Nefndinni þótti réttast að binda hana við atkvæðisrétt í sveitamálum; það er eðlilegast, þar sem eyjan er eign sýslufélagsins og er almennings eign.
Við 3. gr. stingur nefndin upp á tveim breytingum. Sú fyrri er bara orðabreyting, það breytir engu efni, þó orðinu „löggildingar“ sé slept. Hin síðari er efnisbreyting. Hún fer fram á það, að atkvæðafjöldi sá er þarf til að samþykkja frumvarp sýslunefndar skuli færður úr 3/5 upp í 2/3 fundarmanna. Í sumum eldri samþyktarlögum hefir atkvæðafjöldinn um frumv. verið settur hærri, nefnilega 4/5 fundarmanna, en í samþyktarlögum frá síðasta þingi er hann 2/3 og virðist það vera fulltryggilegt.
Þá er viðaukatillaga við 4. gr. Sumum í nefndinni þótti réttast að taka það beint fram, sem reyndar segir sig sjálft að breyta mætti samþyktinni, og þótti þá sá máti sjálfsagður, að breytingin fengi sömu meðferð og undirbúning sem hin upphaflega samþykt.
Nefndin leggur til að frumv. verði samþykt með þessum breytingum.