23.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (746)
24. mál, stofnun Landsbanka
Bjarni Jónsson:
Eg tek ekki til máls af því, að eg vilji blanda mér í ófriðinn milli hinna tveggja stórvelda þar eystra. Eg verð nú samt að játa að í þessu efni hallast eg heldur að skoðun hv. 2. þm. S-Múl. (J. Ó.) í því, að réttara væri að hafa útbú á Reyðarfirði, en á Seyðisfirði. Því að síðan Fagradalsbrautin var fullger hefir verzlun Héraðsmanna færst til Reyðarfjarðar, enda er svo að segja ófært yfir heiðina ofan í Seyðisfjörð, nema rétt um hásumarið
En það er annað í þessu máli, sem eg vildi benda á. Mér finst vafamál hvort nokkur þörf er á þessu frv., því að í bankalögunum frá 18. sept. 1885, 9. gr. stendur svo:
„Bankinn skal, með samþykki landshöfðingja, svo fljótt sem auðið er, setja á stofn aukabanka eða framkvæmdarstofur fyrir utan Reykjavík, einkum á Akureyri, Ísafirði og Seyðisfirði.“
Mér skilst svo, sem hér sé leyft að setja útbú alstaðar, og því þurfi ekki annað en samþykki ráðherrans til þess að breyta til um staðina, ef vill, því að orðið: „einkum“ getur ekki verið bindandi með breyttum kringumstæðum. Eg hygg því að öllu þessu megi koma í kring án nokkurra lagabreytinga.