27.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (754)
24. mál, stofnun Landsbanka
Jóhannes Jóhannesson:
Við fyrri umr. þessa máls, lagði hv. flutningsm. (J. Ó.) áherzlu á það, að útbú Íslandsbanka á Seyðisfirði kæmi ekki Sunnmýlingum að notum, og gaf í skyn, að beitt væri hlutdrægni að því er til lánveitinga kæmi. Eg vil leyfa mér að mótmæla þessu. Eg er persónulega kunnugur bankastjóranum, og veit, að hann er vandaður og valinkunnur maður, sem hefir hag bankans og hag fólksins fyrir augum. Hafi Sunnmýlingar ekki fengið þau lán, er þeir hafa gert sér vonir um og haft nægilega tryggingu fyrir, hefir það stafað af fjárþröng útbúsins, en alls ekki því því að hlutdrægni væri beitt. Hinsvegar veit eg, að það er ósatt mál að Sunnmýlingar hafi ekki fengið lán í útbúinu. Eg hefi afsagt nægilega marga víxla úr Suður-Múla-sýslu til þess, að geta borið það til baka. Söguna þá, að Sunnmýlingar hafi ekki fengið lán til mótorbátakaupa, nema með því móti að þeir keyptu þá hjá kaupmanni á Seyðisfirði, vil eg ekki ætla að hv. þm. hafi smíðað sjálfur, heldur hafi einhver skrökvað þessu að honum og hann trúi því sjálfur. En það veit eg að sagan er öldungis tilhæfulaus. Eg vildi biðja hann að tilnefna heimildarmanninn, svo útbússtjórinn gæti hrundið þessum óhróðri af sér.
Eg skal geta þess, að eg sé enga ástæðu er mælir með þessu frv., 1. þm. G.-K. (B. K.) mælti líka svo eindregið á móti því sem hægt var. Hann sagði að bankastjórnin ætti að ráða hvar útbúið stæði ef það yrði sett á stofn. En ef frv. verður samþ. verður henni einmitt fyrirmunað að ráða því.
Reyðarfjörður er eini staðurinn á Austurlandi, auk Seyðisfjarðar, sem nokkrar samgöngur eru við. En það veit sá, er nokkuð þekkir til þar eystra að um Fagradal eru alls ekki neinar samgöngur nema fáeina mánuði að sumrinu. Reyndar hefir kaupfélag Héraðsbúa aðsetur sitt á Reyðarfirði, en það er mér kunnugt, að það er ekki til sá bóndi á Héraði, sem ekki hefir viðskifti við eina eða fleiri verzlanir á Seyðisfirði.
Hvað viðvíkur stofnun útbús erlendis, finst mér að bankinn ætti fyrst að inna af hendi skyldu sína við bankalögin frá 1885, að því er stofnun útbúa innanlands snertir, áður en hann fer að seilast út fyrir landið, Eg leyfl mér því að leggja til að hvorutveggja frv. og viðaukatillagan verði feld.