23.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í B-deild Alþingistíðinda. (772)

30. mál, mótak

Bjarni Jónsson:

Að eins ofurlítil athugasemd. Eg ætla ekki að hefja nein mótmæli, því að eg tel slíkar samþyktir réttmætar þegar þeir sem hlut eiga að máli óska þeirra. Eg vildi einungis beina því til nefndarinnar fyrir hönd hlutaðeigandi, að mér finst ósanngjarnt að allir aðrir en kjósendur til Alþingis séu útilokaðir frá að eiga hönd í bagga með þessu og því líku.