03.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (804)

36. mál, sala á eign Garðakirkju

Jóhannes Jóhannesson:

Mér þykir það skorta á undirbúning þessa máls, að það hefir ekki verið lagt fyrir stjórnarráðið. Landritari hefir sagt mér að það hafi alls ekki verið gert. Þar sem hér er um allmikið land að ræða, sem landið á, finst mér ekki rétt að gengið sé á bak við stjórnina.

Eg vil þess vegna skjóta því til nefndarinnar, að hún leiti álits stjórnarráðsins um málið. Verði það ekki gert get eg ekki greitt því atkvæði.