29.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (948)

52. mál, Grundarkirkja

Ráðherrann (H. H.):

Mér skildist á orðum hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.), að hann héldi því fram, að þetta mál hefði verið felt hér í deildinni í fyrra. Það er ekki rétt. Það var samþykt hér í deildinni með öllum þorra atkv., og eg man ekki til að aðrir væru á móti því en einmitt hv. þm. sjálfur. En það var felt í Ed við umr. fjárlaganna, því tillagan var þá tekin upp sem fjárlagaatriði til bráðabirgða.