31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í B-deild Alþingistíðinda. (953)

52. mál, Grundarkirkja

Lárus H. Bjarnason:

Eg vildi gera þá fyrirspurn til hv. flutn.m. (St. St.), hvort hann geti gefið mér sæmilega ábyggilegt svar um það, hve marga dilka það mundi draga á eftir sér, ef svona ætti að fara með bændakirkjur landsins yfir höfuð. Þær eru ekki svo fáar, og eg væri ánægður, ef hann svaraði svona hér um bil upp á þúsund.