18.08.1913
Neðri deild: 37. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í C-deild Alþingistíðinda. (1022)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Ráðherrann (H. H.):

Það sem eg átti við í svari mínu til. háttv. þm. Dal. (B. J.) um Hvítárbakkaskólann, var ekki annað en það, að stjórnarvöldin gætu ekki haft daglegt eftirlit með kenslunni í skólanum, fremur en í öðrum sama konar stofnunum.