25.08.1913
Neðri deild: 43. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1809 í C-deild Alþingistíðinda. (1162)

109. mál, forðagæsla

Sigurður Sigurðsson:

Mér finst að miklu fremur ætti að vísa þessu máli til nefndarinnar sem situr á rökstólum í hallærisvarnamálinu.

Þetta eru náskyld mál. Eg geri það því að tillögu minni, að þessu frumv. sé vísað til þeirrar nefndar.