02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í C-deild Alþingistíðinda. (1298)

35. mál, ný nöfn manna og ættarnöfn

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Ég gæti nú reyndar slept að svara háttv. þm. Dal. (B. J.). Hann hefir oft verið skilningsbetri en í dag. Hann getur nú ekki skilið, að menn lifi annarstaðar í heiminum en hér á Íslandi. heldur ekki hefir hann heyrt nefndan »Gröndal« yngra og »Gröndal« eldra.