03.09.1913
Neðri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í C-deild Alþingistíðinda. (1382)
105. mál, jarðirnir Bústaðir og Skildingarnes lagðar undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Ráðherrann (H. H.):
Það var getið um það áðan, að jörðin Kjarni hefði verið lögð undir lögsagnarumdæmi Akureyrar móti vilja hreppsins. Þetta er ekki rétt. Kjarni var alls ekki lagður undir lögsagnarumdæmi Akureyrar. Jörðin var að eins seld Akureyrarkaupstað. Aftur á móti hafa tvær aðrar jarðir úr Hrafnagilshreppi verið lagðar undir lögsagnarumdæmi kaupstaðarins. Það eru jarðirnar Naust og Eyrarland En það var gert með fullum vilja og samþykki hreppsins. Það væri æskilegt, ef hægt væri að koma þessu í kring á sama hátt, að jarðirnar Bústaðir og Skildinganes yrðu lagðar undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur með samþykki allra hlutaðeigenda. Ef Reykjavík vill ekki gera þau boð, að það samþykki geti fengist, get eg alls ekki greitt þessu frumvarpi atkvæði. Mér virðist engin sanngirni í að knýja það fram á þennan hátt gegn eindregnum mótmælum hreppsins.