06.09.1913
Neðri deild: 53. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2209 í C-deild Alþingistíðinda. (1456)

128. mál, friðun fugla og eggja

Pétur Jónsson:

Eg ætla að eins að lýsa yfir því, að eg sé ekki ástæðu til að taka þessa breytingartillögu aftur. Þykist eg hafa töluverðan rétt til að tala um þetta mál, þar eð það kemur meira við því kjördæmi, er eg mæti fyrir, en flestum öðrum héruðum á landinu.

Annars skal eg taka það fram, að eg geri þetta ekki að neinu kappsmáli.