04.07.1913
Efri deild: 3. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (1482)

28. mál, ábyrgðarfélög

Steingrímur Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að kosin verði 3 manna nefnd til þess að fara með þetta mál, sem er nýmæli hjer í deildinni, og verði þeir kosnir, að þessari umræðu lokinni.

Jafnframt skal jeg geta þess, að við deildarmenn, hjeldum prívatfund nú fyrir fundinn, og komum okkur saman um nefndarkosningu, bæði í þessu máli, og öðrum þeim málum sem eru á dagskrá, og mætti því skoða kosninguna sem listakosningu.