05.07.1913
Efri deild: 4. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (1501)

33. mál, málaflutningsmenn við landsyfirréttinn í Reykjavík

Júlíus Havsteen:

Þetta mál er að því leyti skylt því máli, er hjer var til umræðu næst á undan, að það er komið frá málaflutningsmannfjelaginu í Reykjavík og borið fram samkvæmt tilmælum þess. Jeg leyfi mjer því að leggja það til, að því sje, að 1. umr. lokinni, vísað til nefndarinnar, er skipuð var til að íhuga það mál.

ATKVGR.:

Frv: vísað til 2. umr. í e. hlj. Till. Júl. Havsteen samþ. í e. hlj.