12.07.1913
Efri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (1547)

39. mál, skipun læknishéraða

Steingrímur Jónsson:

Þeir, sem talað hafa í máli þessu, hafa talað um það sem alveg sjálfsagt, að nefnd væri sett í mál þetta, til þess að íhuga það, og hafa falið það nauðsynlegt. En jeg hef hins vegar ekki heyrt þá gera neina tillögu um það, og jeg vil því leyfa mjer að stinga upp á því, að þriggja manna nefnd verði kosin að þessari fyrstu umræðu lokinni, til þess að fara með mál þetta hjer í háttv. deild.

Frumv. samþ. til 2. umr. í einu hljóði. 3 manna nefnd samþ. með 10 samhlj. atkv.

I nefndina kosnir samkv. lista:

Guðjón Guðlaugsson,

Guðmundur Börnsson,

Þórarinn Jónsson.

Í nefndinni var Guðjón Guðlaugsson kosinn formaður og Guðmundur Björnsson skrifari.