15.07.1913
Efri deild: 9. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

53. mál, friðun fugla og hreindýra

Steingrímur Jónsson:

Jeg tel frv. þetta þess vert, að því sje gefinn gaumur; en jeg álit, að það eigi ekki að vísa því til eggjanefndarinnar, heldur til nefndarinnar um friðun fugla. Þetta mál heyrir einmitt undir verksvið hennar, því að hjer er farið fram á breyting á fuglafriðunarlögunum. Auk þess hef jeg heyrt, að rjúpnafriðunarnefndin, muni hafa í hyggju að breyta friðunarlögunum í fleiru, en frv. á þgskj. 46 fer fram á, og þá er enn meiri ástæða til, að sú nefnd fái þetta mál til meðferðar.