16.07.1913
Efri deild: 10. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í B-deild Alþingistíðinda. (1580)

28. mál, ábyrgðarfélög

Guðmundur Björnsson, 6. kgkj. Jeg hafði hugsað mjer, að koma fram með brtill. við 2. gr. þessa frumvarps vegna þess, að jeg var ekki fyllilega ánægður með, hvernig hún er orðuð. En jeg hef orðið of seinn með brtill. og vil jeg því mælast til, að málið sje í þetta sinn tekið út af dagskrá, ef háttv. forseti vill leyfa það og. háttv. deild ekkert hefur á móti því.