21.07.1913
Efri deild: 12. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (1652)

46. mál, veiði á Íslandi

Björn Þorláksson, flutningsmaður:

Jeg vil lýsa því yfir, fyrir mína hönd og háttv. meðflutningsmanns míns, að með því að ákvæði þessa frumvarps eru tekin upp í frumv. til laga um friðun æðarfugls, sem er næsta mál á dagskránni, þá tökum við þetta frumvarp aftur.

5. Frumv. til laga um friðun æðarfugls (88, n. 83); 1. umr.