30.07.1913
Efri deild: 19. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)

93. mál, hallærisvarnir

Jósef J. Björnsson:

Jeg ætla aðeins að gera örstutta athugasemd. Ummæli háttv. þm. Barðstr. (H. Kr.) sýna það, að að hann hefur annaðhvort algerlega misskilið ræðu mína eða rangfært hana vísvitandi, og vísa jeg þeim því eim aftur. Um það, sem háttvirtur þm. V.-Sk. (S. E.) sagði um samband sálar og líkama, ætla jeg ekki að deila við hann að þessu sinni.