06.08.1913
Efri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)
24. mál, siglingalög
Sigurður Eggerz, framsögumaður:
Nefndin hefur komið fram með nokkrar brtill. á þgskj. 286 og er aðeins ein þeirra efnisbreyting, en það er brtill. við 1. gr. Brtill. þessi er í fullu samræmi við lög nr. 35., 27. sept. 1901 og lög 19. júní 1888, sem nú eru upp hafin.
Um hinar brtill. er ekki ástæða til að orðlengja. Jeg vil að lokum taka það fram, að það er talsvert um prentvillur í frv., sem skrifstofan hefur gleymt að leiðrjetta, og vona jeg, að það verði gert, er frv. verður endurprentað. Vil jeg svo óska, að mál þetta fái góðan byr, ekki eingöngu hjer í deildinni, heldur líka í hv. neðri deild.