08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (1873)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Sigurður Eggerz:

Jeg leyfi mjer að skjóta því til háttv. forseta, hvort hann vilji ekki taka málið út af dagskrá. Jeg ætlaði mjer að koma með brtill. um, að línan frá Vík að Kirkjubæ á Síðu væri tekin upp í annan flokk, en varð of seinn með hana, en gæti komið henni að, ef málinu yrði frestað.