19.08.1913
Efri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (1966)

13. mál, vörutollur

Jósef Björnsson:

Jeg vil aðeins leyfa mjer að benda háttv. nefnd á, að það er óviðkunnanlegt, að þar sem hún telur upp jarðyrkjuverkfæri, tekur hún ekki nærri öll slík verkfæri með. Hún sleppir t. d. alveg rakstrarvjelum, vjelum til að snúa heyi með og mörgum fleiri verkfærum, er ástæða er til, að teldust til sama flokks. Vænti jeg þess hún taki þetta til athugunar og lagfæri það, ef hún sjer það fært.