20.08.1913
Efri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í B-deild Alþingistíðinda. (1981)

36. mál, nafnabreytingar og ný nöfn á býlum

Einar Jónsson:

Þar sem frsm. nefndarinnar hefur lýst því yfir, fyrir hönd nefndarinnar, að hún hefði sjerstaklega athugað síðari brtill. og ekki álitið, að hennar þyrfti með, svo frv. yrði skýrara, þá get jeg eftir atvikum látið mjer það nægja. Og þar sem frsm. nefndarinnar taldi hina brtill. óþarfa og lögfræðingarnir hafa ekki mótmælt því og þar með samþykt ummæli hans, þá getur ef til vill 6. gr. verið fullskýr, svo jeg tek brtill. aftur, til þess að málið þurfi eigi að fara aftur til Nd., þó að jeg eigi að síður áliti rjettara, að þær hefðu verið samþ.