22.08.1913
Efri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 689 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

107. mál, sérstök dómþinghá í Öxnadalshreppi

Forseti:

Hinn lögboðni þingtími er nú liðinn. En með því að miklu er enn ólokið af störfum þess, hefur hv. ráðherra skýrt mjer frá, að þingið væri Framlengt til laugardagsins 6. sept. næstk., að þeim degi meðtöldum. Þetta vildi jeg tilkynna hv. deild.