28.08.1913
Efri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (2072)
91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs
Júlíus Havsteen:
Ekki skal jeg ræða um einokun, jeg vildi að hún yrði hvorki nefnd á nafn hjer í hv. deild nje annarsstaðar.
En frv. þetta hefur tvær hliðar, og önnur þeirra þykir mjer kenna um of at „kommunismus“. Hann getur að vísu verið góður innan þröngra takmarka, en hann getur farið oflangt. Og jeg get ekki felt mig við, hversu langt er gengið í því efni í 2. gr. frv., því mjer lízt það svo, að allir þeir, er kornhjálp fá, sjeu þar gerðir að sveitarlimum; helminginn af korninu á sveitin sem sje að greiða, en landssjóður hinn helminginn (G, B.: Nei). Jú, það stendur svo.
Yfirleitt er kommunismus hættulegur. Það hefur sagan sýnt, að það er hið versta og hættulegasta, er þjóðirnar geta bygt á, því að þá hætta þær að hugsa um sjálfa sig, og alt lendir í aumingjaskap. En það er ekki eins gott og affarasælt fyrir þjóðirnar, að hver einstaklingur hugsi um sig sjálfur og treysti sjer, en kasti ekki áhyggju sinni á aðra. Og þjóð og stjórn ætti því að gera hvað hún gæti til að auka sjálfstilfinning og sjálfstraust einstaklingsins, en ekki með löggjöf sinni og öðrum fyrirskipunum gera það gagnstæða. Það væri affarasælt. En hjer í frv., í 2. gr. á hið mótsetta sjer stað, og get jeg því ekki verið með frv., nema að 2. grein þess sje feld í burtu. Ef svo er gert, hef jeg ekkert við frv. að athuga.