02.09.1913
Efri deild: 44. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (2123)

40. mál, hagur Landsbankans

Jón Jónatansson; Af því jeg er annar þessara sjúklinga, sem um er talað, vil jeg taka undir með háttv. 2. þm. Skgf. (J. B.) og lýsi yfir því, að mín vegna er engin ástæða til að taka málið út af dagskrá.